Tengigjald - Gjald við upphaf samningaviðræðna
Skoðað var að þróa gjald sem innheimt yrði af viðskiptavinum sem tengjast vilja flutningskerfinu áður en til samnings kemur. Slíku gjaldi var ætlað að minnka áhættu Landsnets sökum aukins fjölda tengifyrirspurna og standa straum af auknum kostnaði vegna verkefna sem komin eru skammt á veg.
Markmið með tengigjaldi:
- tenging við flutningskerfið verði sem skilvirkust
- halda Landsneti og þar með viðskiptavinum skaðlausum vegna vinnu við tengingu nýrra aðila.
- tryggja sanngirni, jafnræði og gagnsæi
Landsnet upplýsir að tekin hefur verið sú ákvörðun að hætta við þetta fyrirkomulag um greiðslu tengigjalds samkvæmt gjaldskrá, sem kynnt var fyrir viðskiptavinum þann 13. júní 2024. Landsnet þakkar umsagnaraðilum fyrir að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
Það að Landsnet hætti við þessa útfærslu á tengigjaldi í gjaldskrá hefur ekki áhrif þegar kemur að skyldu Landsnets til þess að fara fram á greiðsluábyrgðir vegna nýrra eða breyttra tenginga við flutningskerfið, þ.m.t. við undirbúning slíkra framkvæmda. Nýtt fyrirkomulag felur í sér að strax við upphaf samningaviðræðna, og fyrir gerð tengisamnings, er gerður sérstakur samningur um greiðslu kostnaðar og greiðslutryggingu vegna undirbúnings tengingar við flutningskerfi raforku. Í þeim samningi eru verkþættir skilgreindir, fjárhæð kostnaðar, fyrirkomulag ábyrgða ásamt gildistíma. Verði síðar af tengingu verður gerður sérstakur tengisamningur sem kveður m.a. á um útreikning á kerfisframlagi o.fl.
Nánari útskýringar um ferli tenginga við flutningskerfið má finna í leiðbeiningum Landsnets um tengingu vinnsluaðila við flutningskerfið.
Ef einhverjar spurningar vakna endilega hafið samband við okkur á netfangið vidskipti@landsnet.is
Fylgiskjöl
Kynning á tengigjaldi fyrir viðskiptavini í umsagnaferli
Drög: Gjaldskrá Landsnets nr.52 -gildir frá 1. apríl 2024 - með tengigjaldi - með track changes
Umsagnir viðskiptavina og viðbrögð Landsnets
FLÝTILEIÐIR
FLÝTILEIÐIR