Tæknilegar kröfur við tengingu við flutningskerfið (D2)
Verið er að vinna að frumútgáfu skilmála D2 um tæknilegar kröfur til notenda. Markmiðið með skilmálanum er að hafa skilgreindar kröfur til að tryggja gæði raforku í afhendingarstað til og frá notendum og tryggja afhendingaröryggi viðskiptavina okkar. Einnig stuðlar skilmálinn að gagnsæi og jafnræði meðal viðskiptavina okkar.
Ein umsögn um skilmálann barst í kjölfar kynningarfundar fyrir viðskiptavini. Umsögnin hefur verið birt ásamt svörum Landsnets við umsögn. Gerðar voru breytingar á skilmálanum í kjölfar umsagnarferlis. Lokaskjöl og skjal sem sýnir breytingar er að finna undir fylgiskjöl. Skilmálinn hefur verið sendur til Raforkueftirlitsins til samþykktar og er áætlað að skilmálinn taki gildi í ágúst 2025.
Ef einhverjar spurningar vakna endilega hafið samband við okkur á netfangið vidskipti@landsnet.is
Fylgiskjöl
Drög að tengiskilmálum notenda D2
Umsagnir og svör Landsnets við umsögnum
FLÝTILEIÐIR
FLÝTILEIÐIR