Breytingar á reglum um vottun virkjana vegna útgáfu upprunaábyrgða
Með lögum nr. 30/2008 um upprunaábyrgð á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum o.fl. er Landsneti falið að annast útgáfu upprunaábyrgða á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum eða samvinnslu raf- og varmaorku. Jafnframt er Landsneti falið að hafa eftirlit með því að raforka sem gefin er upprunaábyrgð fyrir sé í raun framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum eða samvinnslu raf- og varmaorku.
Frá árinu 2019 hafa verið í gildi reglur Landsnets um vottun virkjana fyrir útgáfu upprunaábyrgða. Reglur þessar hafa stoð í 2. mgr. 3. gr. laga 30/2008. Reglurnar ná eins og heitið gefur til kynna ekki yfir aðra þætti tengda útgáfu upprunaábyrgða en vottun virkjana. Lög nr. 30/2008 kveða á um nokkuð víðtæka skyldu umsækjanda um útgáfu upprunaábyrgða til þess að veita Landsneti upplýsingar sem Landsnet telur nauðsynlegar viðvíkjandi útgáfu upprunaábyrgða.
Með hliðsjón af umfangsmikilli útgáfu upprunaábyrgða, umfjöllun sem verið hefur um útgáfu upprunaábyrgða á Íslandi og skyldum Landsnets sem aðila að AIB (Association of Issuing Bodies) telur Landsnet rétt að uppfæra reglur um vottun virkjana fyrir útgáfu upprunaábyrgða. Hefur verið bætt við ákvæðum sem skýra og formfesta ferli við útgáfuna og kveða á um nauðsynlega öflun upplýsinga vegna útgáfu upprunaábyrgða. Jafnframt er gert ráð fyrir að útbúið verði eyðublað sem umsækjendur fylla út þegar óskað er eftir útgáfu upprunaábyrgða. Er þess vænst að það auðveldi nauðsynlega upplýsingaöflun vegna útgáfunnar.
Ábendingar og umsagnir skulu sendast á vidskipti@landsnet.is innan umsagnarfrests sem var til fimmtudagsins 20. mars 2025, en hefur verið framlengt til 30. mars 2025. Ábendingar sem berast verða teknar til skoðunar og grein gerð fyrir því hvort og þá að hvaða marki þær hafa leitt til breytinga frá upphaflegum drögum.
Þann 18. mars 2025 var birt uppfært skjal sem sýnir breytingar, þar sem fyrra skjal sýndi ekki allar breytingar.
Fylgiskjöl
Umsagnir og viðbrögð Landsnets
Umsagnir hagsmunaaðila
FLÝTILEIÐIR
FLÝTILEIÐIR