Gjaldskrá Landsnets (B1) - Innmötunargjöld
Núverandi uppbygging á gjaldskrá Landsnets hefur verið óbreytt frá stofnun fyrirtækisins árið 2005. Umhverfið er að breytast hratt og ákveðnir drifkraftar, innanlands sem utan, hafa áhrif á ákvörðun um endurskoðun. Má þar nefna alþjóðlega drifkrafta og evrópska löggjöf, innlenda drifkrafta svo sem hreyfingar á orkumarkaði, möguleg orkustefna, breytingar á viðskiptaumhverfi og stærð og eðli viðskiptavina.
Önnur lönd og flutningsfyrirtæki standa einnig frammi fyrir þeirri áskorun að meta hvernig flutningsgjöld geta stutt raforkumarkaðinn í að mæta stefnu stjórnvalda. Flutningsgjaldskrá ber að veita hvata til að lágmarka heildarkostnað raforkukerfisins á sama tíma og horft er til annarra víðari markmiða eins og gæta jafnvægis milli efnhagslegra, samfélagslegra og umhverfislegra þátta.
Tilgangur og hlutverk flutningsgjaldskrár Landsnets er að:
i. innheimta tekjur í samræmi við þau tekjumörk sem flutningsfyrirtækinu er sett.
ii. nýta auðlindir eins vel og mögulegt er, stuðla að ákjósanlegri uppbyggingu flutningskerfisins ásamt því að halda kostnaði niðri.
iii. styðja við núverandi og framtíðar fyrirkomulag á raforkumarkaði
Markmið endurskoðunar er annars vegar að meta áskoranir á núverandi uppbyggingu á gjaldskrá með hagsmunaðilum og meta þörf á nauðsynlegum breytingum til að tryggja að gjaldskráin þjóni tilgangi sínum og hlutverki og geti aðlagast framtíðaráskorunum.
Við fengum erlenda ráðgjafa frá ráðgjafafyrirtækinu AFRY (fyrrum Pöyry) til að aðstoða okkur við endurskoðun á flutningsgjaldskránni. Verkefninu hefur verið skipt í tvo áfanga.
Áfangi 1: Markmið áfanga 1 er að meta áskoranir á núverandi gjaldskráruppbyggingu. Það var gert í samráði við hagsmunaaðila raforkumarkaðarins þar sem styrkleikar og veikleikar á núverandi uppbyggingu voru metnir ásamt því að bera kennsl á væntanlega þróun á íslenska raforkumarkaðnum. Niðurstöður úr áfanga 1 liggja fyrir og er hægt að sjá þær undir Fylgiskjöl hér neðar á síðunni.
Áfangi 2: Markmið áfanga 2 er að þróa, greina og innleiða mikilvægar breytingar til að tryggja að gjaldskráin þjóni tilgangi sínum og hlutverki. Unnið er í samráði við hagsmunaaðila raforkumarkaðarins. Í nóvember 2020 var áfangaskýrsla I birt, en hún dregur saman vinnuna sem gerð hefur verið, forgangsverkefni og tillögur að fyrstu breytingum. Nánari útfærsla á breytingunum var birt í lok apríl 2021. Gögn er birt hér neðar á síðunni undir Fylgiskjöl.
Áfangi 2A: Markmið áfanga 2a er að aðlaga gjaldskránna að sanngjarnri skiptingu kostnaðar milli viðskiptavina okkar og sjá til þess að gjald virkjana veitir vinnsluaðilum merki um raunkostnað við innmötun raforku. Útfærsla á breytingu á uppbyggingu á innmötunargjaldi virkjana í flutningsgjaldskrá Landsnets liggur nú fyrir, sjá undir fylgiskjöl hér neðar á síðunni, og er áætluð gildistaka 1. janúar 2022.
Áfangi 2B: Markmið áfanga 2B er að aðlaga gjaldskránna að fjölbreyttari hóp viðskiptavina okkar. Má þar nefna endurskoðun á notendaflokkum, aðferðafræði við uppgjör á afli og afhendingaröryggi. Einnig verður unnið að heildstæðum vegvísi fyrir gjaldskrárþróunarverkefnið.
Ef einhverjar spurningar vakna endilega hafið samband við okkur á netfangið vidskipti@landsnet.is
Fylgiskjöl
Gögn
Gögn fyrir umsagnarferli vegna breytinga á gjaldi virkjana
Gjaldskrárþróun Landsnets_upplýsingar varðandi breytingu á gjaldi virkjana - áfangi 2a
Lokaeintök eftir umsagnarferli vegna breytinga á gjaldi virkjana, áætluð gildistaka 1. janúar 2022
Umsagnir viðskiptavina og viðbrögð Landsnets við þeim - innmötunargjald - áfangi 2a
Drög að nýrri gjaldskrá Landsnets - gildir frá 1. janúar 2022 með track changes frá umsagnarferli
FLÝTILEIÐIR
FLÝTILEIÐIR