Tenging vinnsluaðila við flutningskerfið (D4)

Markmið og tilgangur
Greiningar og hönnun
Ritun og samráð lauk í maí 2020
Umsagnarferli
Umsagnarferli stóð yfir frá 5.07.2020 - 7.8.2020
Samþykktarferli
Skilmálinn var sendur til samþykktar til Orkustofnunar 7.12.2020. Skilmáli sendur aftur til samþykktar Orkustofnunnar 19.06.2023 í kjölfar ákvörðunar OS í apríl sama ár. Aftur endursendur til OS 5.07.2024.
Gildistaka
Tekur gildi 20.09.2024.

Forsendur sem þurfa að vera til staðar til þess að farið sé í samningaviðræður  
Undanfarin misseri hefur eftirspurn eftir tengingu vinnsluaðila við flutningskerfið aukist. Á tilteknum stöðum í flutningskerfinu eru aðstæður þannig að afkastageta er langt undir þeirri eftirspurn sem virðist vera til staðar ásamt því að vinnsluaðilar eru komnir mislangt á veg í ferlinu þegar óskað er eftir tengingu. Þegar eftirspurn eftir flutningsgetu í flutningskerfinu er umfram fyrirliggjandi lausa afhendingargetu kann að þurfa að beita undantekningarákvæði raforkulaga og hafna aðila um tengingu við flutningskerfið.

Mikilvægt er því að gera ferli við samningsgerð vegna tengingar vinnsluaðila við flutningskerfið skýrt og gagnsætt til hagsbóta fyrir alla sem að slíkum málum koma.

Markmið með nýjum skilmála er að:

  • setja fram skýrar og gangsæjar leiðbeiningar fyrir vinnsluaðila og þá sem vinna að verkefninu fyrir hönd Landsnets
  • skilgreina þær forsendur sem þurfa að vera til staðar til þess að gerður verði tengisamingur við framleiðanda raforku sem æskir þess að tengjast við flutningskerfi raforku
  • skilgreina hvaða viðmið beri að leggja til grundvallar beitingu undantekningarákvæðis í raforkulögum sem felur í sér heimild til þess að synja nýjum aðila um aðgang að flutningskerfi Landsnets.

 

Ferli við gerð netmála Landsnets er opið og gagnsætt. Allar umsagnir sem berast verða birtar opinberlega á heimasíðunni okkar ásamt viðbrögðum okkar við þeim.   
Ef einhverjar spurningar vakna endilega hafið samband við okkur á netfangið vidskipti@landsnet.is

Fylgiskjöl

Gögn fyrir umsagnarferli

Drög: Netmáli D4- Tenging vinnsluaðila við flutingskerfi Landsnets útg. 1.0 1.12.20

Draft: Grid Code D4 - Requirements for Generators v1.0

Umsagnir og viðbrögð okkar við þeim

Viðbrögð Landsnets við umsögnum um D4

Skilmáli D4 um skilyrði fyrir tengingu vinnsluaðila útg.1.0 _ með breytingum frá drögum úr umsagnarferli

Lokaútgáfa af skilmálanum útg. 1.0

Drög: Netmáli D4 - Tenging vinnsluaðila við flutningskerfi landsnets útg. 1.0 1.7.23

Samþykkt: Netmáli D4 - Tenging vinnsluaðila við flutningskerfi landsnets útg. 1.0 20.9.24