Siðareglur fyrir birgja Landsnets

Samþykktar 18. febrúar 2024

Landsnet gerir kröfu um að birgjar okkar hlíti þeim lögum og reglum sem gilda um viðskipti á Íslandi og öðrum þeim löndum þar sem viðskiptin eiga sér uppruna. Við lítum til markmiða Sameinuðu þjóðanna um siðferði í viðskiptum og ætlumst til þess að okkar birgjar horfi til og virði viðurkennd gildi um mannréttindi, réttindi launþega, loftlags- og umhverfismál.

Siðareglur þessar eru grunnur að viðskiptasambandi milli okkar og birgja og munum við eftir því sem við á rifta viðskiptasambandi við birgja sem ekki uppfylla þær kröfur sem gerðar eru í siðareglunum.

Siðareglurnar gilda jafnt um birgja og undirbirgja.

Landsnet ætlast til eftirfarandi:

Mannréttindi

  • Að virða alþjóðleg mannréttindi og tryggja að þeir hvorki brjóti né stuðli að brotum á mannréttindum.
  • Að tryggja umhverfi sem einkennist af virðingu við starfsfólk.

Vinnumarkaður

Vinna barna

  • Að nýta ekki vinnuafl barna undir 15 ára eða á grunnskólaaldri en heimilt er þó að leyfa létta vinnu frá 13 ára aldri sem skaðar ekki öryggi þeirra eða heilsu né hefur áhrif á nám.
  • Óheimilt er að slík vinna fari fram eftir kl. 19:00.

Nauðungarvinna

  • Að ábyrgjast að starfsfólk geti unnið vinnu sína án hótanna, áreitni eða nauðungar.

Vinnuréttur og jafnræði

  • Að mismuna ekki starfsfólki sínu á nokkurn hátt t.d. vegna kyns, stjórnmálaskoðana, trúarbragða, fötlunar, þjóðernis eða öðrum þáttum.
  • Ómálefnalegar uppsagnir teljast til  mismununar.

Laun

  • Að greiða ávallt að lágmarki þau lágmarkslaun sem skilgreind eru samkvæmt lögum viðeigandi lands og greiða laun með reglubundnum hætti a.m.k. mánaðarlega.
  • Laun skulu aldrei greidd í gegnum milliliði svo sem starfsmannaleigur.

Heilsa, öryggi og umhverfi

Vinnuaðstæður

  • Að tryggja starfsfólki sínu öruggt og heilbrigt starfsumhverfi og gæti þess að það hafi aðgengi að fræðslu um öryggismál og viðeigandi hlífðarbúnað til að það geti unnið vinnu sína á öruggan hátt.

Umhverfismál

  • Að fara eftir alþjóða samþykktum og landslögum í því landi sem starfsemi fer fram um umhverfismál.
  • Að draga eins og hægt er úr kolefnisspori og öðrum umhverfisáhrifum af rekstri sínum með skipulögðum hætti og ef kostur er hafa umhverfisvottun.

Viðskipti

  • Að starfa í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti og stundi viðskipti í samræmi við lög og reglur í viðkomandi landi.

Spilling er ekki liðin í hvaða formi sem hún er sama hver hagnast af henni, þar með talið mútur, kúgun og fjársvik.