Framkvæmd

Verkefnið felst í tengingu tveggja landeldisfyrirtækja við 66 kV flutningskerfi Landsnets, til þess að tryggja þeim örugga orkuafhendingu til sinnar starfsemi.. Lagðir verða þrír nýir 66 kV jarðstrengir sem nefndir verða Suðurstrandarlínur 1,2&3 (SD1, SD2 og SD3), en heildarlengd þeirra er um 8 km og verður heildarlengd lagnaskurða um 5 km.


Tengivirkið í Þorlákshöfn verður stækkað og bætt verður við þremur 66 kV rofareitum með lofteinangruðum búnaði.


Áætlað er að verkframkvæmdir hefjist vorið 2024 og að spennusetning verði snemma árs 2025.
 

Tengiliðir

Karítas Líf Valdimarsdóttir
Verkefnastjóri
563 9300

innviðauppbygging

Í undirbúningi
Aftur í yfirlit framkvæmda