EIC-kóði (Energy Identification Code) er einstakt auðkenni fyrir aðila og einingar á orkumarkaði.

EIC-kóðakerfið er stofngagnastjórnunar kerfi frá ENTSO-E og er notað til að auðkenna markaðsaðila, svæði, mælipunkta og aðrar einingar með einkvæmum hætti. EIC-kóðar gera áreiðanleg og sjálfvirk gagnaskipti milli markaðsaðila og flutningsfyrirtækja möguleg.

EIC-kerfið er útbreitt í Evrópu og auðkennin eru notuð í margvíslegum markaðsferlum.

Landsnet annast útgáfu EIC-kóða á Íslandi og gegnir hlutverki staðbundinnar útgáfuskrifstofu (Local Issuing Office, LIO).

Hvenær þarf EIC-kóða?

EIC-kóða þarf þegar aðili tekur þátt í gagnaskiptum á orkumarkaði eða þegar auðkenna þarf svæði, mælipunkt eða aðra einingu með einkvæmum hætti samkvæmt evrópska EIC-staðlinum.

EIC-kóða getur til dæmis þurft til að  nota til að auðkenna:

  • fyrirtæki eða markaðsaðila
  • framleiðslu- eða notkunareiningu
  • mælipunkt
  • svæði í raforkukerfinu
  • tengivirki eða aðra skilgreinda einingu

EIC-kóði er einkvæmur í Evrópu. Sami aðili eða sama eining fær aðeins einn kóða af viðkomandi gerð. Kóðinn breytist til dæmis ekki þótt heiti fyrirtækis breytist. Honum er aðeins breytt ef grundvallarbreyting verður á stöðu aðilans sem hann auðkennir.

Umsókn um EIC-kóða

Sótt er um EIC-kóða með tölvupósti á lio@landsnet.is. Á sama netfang má senda fyrirspurnir og óska eftir nánari leiðbeiningum um umsóknir.

EIC-kóði er auðkenni fyrir gagnaskipti. Úthlutun hans veitir ekki ein og sér heimild til starfsemi á orkumarkaði.

Afgreiðsla umsóknar gengur greiðar fyrir sig ef allar nauðsynlegar upplýsingar fylgja. Eftirfarandi eru upplýsingar sem þurfa að fylgja með eftir tegund EIC-kóða:

Upplýsingar sem þurfa að fylgja öllum umsóknum

  • Hvaða EIC-kóða eða kóðategund er sótt um.
  • Heiti fyrirtækis eða lögaðila, heimilisfang og kennitala.
  • Nafn tengiliðar, netfang og símanúmer.
  • Fyrirliggjandi X-kóði, ef sótt er um aðra kóðategund og umsækjandi hefur þegar fengið X-kóða.

Umsókn um X-kóða – aðilar á raforkumarkaði

Tilgreina skal hlutverk umsækjanda á raforkumarkaði. Veljið eitt eða fleiri hlutverk úr töflunni.

Heiti hlutverka eru þýdd til hægðarauka en enskt staðlaheiti fylgir til að tryggja samræmi við Harmonised Electricity Market Role Model (HEMRM), útgáfu 2022-01.

Hlutverk á íslenskuStaðlað heiti á ensku (HEMRM)
SamræmingaraðiliAlignment Agent
JöfnunarábyrgðaraðiliBalance Responsible Party
JöfnunarþjónustuaðiliBalancing Service Provider
InnheimtuaðiliBilling Agent
FlutningsgetuviðskiptaaðiliCapacity Trader
Umsjónaraðili samþykkisConsent Administrator
NotandiConsumer
Ábyrgðaraðili notkunarConsumption Responsible Party
Samræmdur útreikningsaðili flutningsgetuCoordinated Capacity Calculator
Rekstraraðili samhæfingarstöðvarCoordination Centre Operator
GagnaaðgangsveitandiData Access Provider
GagnaveitandiData Provider
DreifiveitaDistribution System Operator
OrkuþjónustufyrirtækiEnergy Service Company
OrkusaliEnergy Supplier
OrkukaupmaðurEnergy Trader
SveigjanleikaþjónustuaðiliFlexibility Service Provider
Veitandi aðgangs að raforkukerfiGrid Access Provider
Rekstraraðili raforkukerfisGrid Operator
Ábyrgðaraðili uppgjörs frávikaImbalance Settlement Responsible
UpplýsingaveitandiInformation Provider
Ábyrgðaraðili viðskipta um samtengingarInterconnection Trade Responsible
Rekstraraðili tíðni- og aflskiptastýringarLFC Operator
Rekstraraðili LNG-kerfisLNG System Operator
Rekstraraðili markaðssvæðisMarket Area Operator
Samþættingaraðili markaðsupplýsingaMarket Information Aggregator
MarkaðsrekstraraðiliMarket Operator
MæliþjónustuaðiliMeasurement Service Provider
Ábyrgðaraðili forgangsraðalistaMerit Order List Responsible
Umsjónaraðili mælaMeter Administrator
Rekstraraðili mælaMeter Operator
Umsjónaraðili mæligagnaMetered Data Administrator
Samþættingaraðili mæligagnaMetered Data Aggregator
Söfnunaraðili mæligagnaMetered Data Collector
Ábyrgðaraðili mæligagnaMetered Data Responsible
Umsjónaraðili mælistaðaMetering Point Administrator
Rekstraraðili mælistaðaMetering Point Operator
Aðili sem sameinar líkönModel Merging Agent
Ábyrgðaraðili líkanagerðarModelling Authority
NetnotandiNetwork User
Tilnefndur rekstraraðili raforkumarkaðarNominated Electricity Market Operator
Staðfestingaraðili áætlanaNomination Validator
Umsjónaraðili markaðsaðilaParty Administrator
Aðili tengdur raforkukerfiParty Connected To Grid
Umsjónaraðili heimildaPermission Administrator
Rekstraraðili vettvangsPlatform Operator
FramleiðandiProducer
Ábyrgðaraðili framleiðsluProduction Responsible Party
Uppgjörsskyldur aðiliReconciliation Accountable
Ábyrgðaraðili afstemmingarReconciliation Responsible
Úthlutunaraðili varaaflsReserve Allocator
Samþættingaraðili auðlindaResource Aggregator
Rekstraraðili fyrirkomulags um varaaflsgetuResource Capacity Mechanism Operator
AuðlindaveitandiResource Provider
ÁætlunargerðaraðiliScheduling Agent
Ábyrgðaraðili áætlunarsvæðisScheduling Area Responsible
Rekstraraðili orkugeymslukerfisStorage System Operator
KerfisrekstraraðiliSystem Operator
Ábyrgðaraðili viðskiptaTrade Responsible Party
Úthlutunaraðili flutningsgetuTransmission Capacity Allocator

Umsókn um W-kóða – auðlindir og einingar

Tilgreina skal eftirfarandi upplýsingar um viðkomandi auðlind:

  • Heiti auðlindar eða einingar.
  • Hlutverk auðlindar (veljið eitt):
    • Framleiðslueining (Generation Unit): t.d. rafall eða hverfill í orkuveri.
    • Framleiðslustaður (Production Unit): t.d. orkuver eða verksmiðja.
    • Auðlind (Resource Object): almenn eining, t.d. framleiðslu-, notkunar- eða geymslustaður, þegar ekki er þörf á nánari flokkun.
    • Álag / notkun (Load): raforkunotkunarstaður, t.d. iðnaðaraðstaða, bygging eða annar raforkunotandi.
  • Aflupplýsingar um framleiðslustöð, ef við á.

Tegundir EIC-kóða

EIC-kóðar eru notaðir til að auðkenna mismunandi aðila, svæði og einingar:

Tegund Notkun
X-kóði Markaðsaðilar, svo sem fyrirtæki.
Y-kóði Netsvæði og mælisvæði.
Z-kóði Orkumælipunktar.
W-kóði Orkueiningar fyrir framleiðslu, notkun eða geymslu orku.
T-kóði Raforkutengingar milli landa.
V-kóði Efnislegar eða röklegar staðsetningar.
A-kóði Tengivirki — stöðvar og línur.