Tilkynning um breytingar á gjaldskrá Landsnets


02.12.2024

Framkvæmd

Eftirfarandi bréf hefur verið sent á viðskiptavini:

 


Flutningur til dreifiveitna og stórnotenda

Uppbygging og styrking flutningskerfsins er mikilvægur þáttur þegar kemur að því að auka öryggi og lífsgæði í landinu, styðja við orkuskiptin, bæta nýtingu auðlinda og skapa sterkari innviði fyrir nýsköpun og sjálfbæra framtíð. Á næstu árum munu því fjárfestingar í flutningskerfi raforku skipta sköpum þegar kemur að þessum þáttum.

Gjaldskrá vegna úttektar til dreifiveitna og stórnotenda mun breytast vegna þessa. Flutningsgjaldskrá Landsnets er í samræmi við tekjumörk sem Raforkueftirlitið setur Landsneti á hverjum tíma og byggir á forsendum um m.a.:

  • Tekjumörk Landsnets
  • Áætlun um raforkunotkun
  • Fjárfestingar í flutningskerfinu samkvæmt framkvæmdaáætlun kerfisáætlunar


Gjaldskráin þjónar því hlutverki að við getum haldið áfram að styðja við þróun orkumála og uppfylla kröfur samfélagsins um öfluga og umhverfisvæna orkuinnviði. Aðlaga þarf gildandi gjaldskrá hverju sinni að ofangreindum aðstæðum.

Þörf er á að hækka gjaldskrá vegna úttektar frá og með 1. janúar 2025 um:

  • 15% til dreifiveitna
  • 8% til stórnotenda

Flutningskostnaður er um 13% af heildar rafmagnsreikningi heimilanna og nemur breytingin um 1,9% hækkun til meðal heimilis. Dæmi: Ef heimili greiðir 5.000 kr. á mánuði í heildar rafmagnsreikning, þá nemur hækkunin 95 kr. á mánuði.

Flutningstöp

Til að tryggja jafnvægi í orkukerfinu fyrir heimili og fyrirtæki um allt land þarf að afla orku vegna flutningstapa, sem er óhjákvæmilegur hluti raforkukerfisins. Kostnaður hennar ræðst bæði af magni orkunnar sem tapast og markaðsverði raforku. Þar sem markaðsverð raforku er breytilegt eftir ársfjórðungum, hafa slíkar sveiflur einnig áhrif á heildarkostnað flutningstapa hverju sinni.

Landsnet hefur þegar keypt orku vegna grunntapa fyrir heilt ár yfir tímabilið júlí 2024 til júní 2025 þar sem mikilvægt er að tryggja grunntöp fram á mitt næsta ár vegna óvissu um áframhaldandi stöðu miðlana. Nú höfum við einnig aflað okkur orku til að mæta viðbótartöpum á fyrri hluta árs 2025. Um 176.000 MWst voru keyptar í tveimur útboðum, en alls bárust tilboð upp á um 431.000 MWst.

Frá og með 1. janúar 2025 mun ný gjaldskrá vegna flutningstapa taka gildi og endurspegla þann kostnað sem fylgir kaupum á flutningstöpum fyrir fyrsta ársfjórðung 2025. Þessi breyting er óhjákvæmileg til að tryggja áframhaldandi áreiðanleika flutningskerfisins.

Gjald vegna flutningstapa verður 216,82 kr. á MWst. frá og með 1. janúar 2025.

Þegar horft er til næstu 6 mánaða er um að ræða um 1,9% lækkun á gjaldi vegna flutningstapa. Fyrirséð er um 20% lækkun á gjaldi vegna flutningstapa fyrir annan ársfjórðung 2025 en sú breyting verður send raforkueftirlitinu til afgreiðslu innan lögbundinna tímamarka fyrir áætlaða gildistöku 1. apríl 2025.

Kerfisþjónusta

Við hjá Landsneti leggjum mikla áherslu á að tryggja áreiðanleika og stöðugleika raforkukerfisins til hagsbóta fyrir alla viðskiptavini okkar. Til þess að slíkt kerfi geti starfað hnökralaust þarf kerfisþjónusta að vera til staðar – þjónusta sem gegnir lykilhlutverki í því að viðhalda jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar, tryggja rekstraröryggi og koma í veg fyrir truflanir í raforkukerfinu.

Keypt hefur verið þjónusta, reglunaraflstrygging, fyrir flutningskerfið fyrir fyrri hluta árs 2025 sem endurspeglar um 40% af heildarkostnaði vegna kerfisþjónustu. Þetta kallar á breytingu á gjaldskrá vegna kerfisþjónustu sem tekur mið að þessum kostnaði. Breytingin er nauðsynleg til að tryggja að við getum haldið áfram að mæta kröfum nútímans um öruggt og stöðugt raforkukerfi.

 

Gjaldskrá vegna kerfisþjónustu verður 95,82 kr./MWst. frá og með 1. janúar 2025.

Aftur í allar fréttir