Umhverfisúttektir og eftirfylgni umhverfismats
Umhverfisúttektir. Í lok framkvæmdaverka sem innifela jarðstrengi eða loftlínur vinnur Landsnet umhverfisúttekt í samræmi við staðlað verklag fyrirtækisins. Umhverfisúttekt er unnin að loknum lokafrágangi.
Umhverfisúttekt er í grófum dráttum skipt upp í tvo hluta, skrifborðsúttekt og yfirborðsúttekt. Farið er yfir loforð og skilyrði um mótvægisaðgerðir og frágang sem gefin voru í leyfis- og framkvæmdaferlinu og skráð og kannað hvaða mótvægisaðgerðir voru gerðar.
Umhverfisúttekt Kröflulínu 3 lauk með þessari skýrslu í árslok 2023.
Helstu niðurstöður eftir vettvangsferð var að frágangur á framkvæmdasvæði Kröflulínu 3 væri almennt mjög góður og lýstu umsagnaraðilar ánægju með niðurstöðurnar.
Umhverfisúttekt Kröflulínu 3.
Eftirfylgni umhverfismats. Landsnet gerði árið 2019 tilraun til að vinna sérstaka eftirfylgni á umhverfismati fyrir Bakkalínur (Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4).
Verkefninu var ætlað að bera saman spár úr umhverfismati, um áhrif nokkurra þátta framkvæmdar við raunveruleg áhrif.
Ávinningur af eftirfylgni sem þessari er nokkur:
- Upplýsingar úr eftirfylgninni verða nýttar til að bæta matsferlið og aðferðir við að spá fyrir um áhrif í umhverfismati
- Aukinn trúverðugleiki mats á umhverfisáhrifum í framkvæmdum Landsnets
- Aukin þekking á raunverulegu raski framkvæmda
- Aukin þekking á umfangi varanlegs rasks og tímabundins rasks
- Eftirfylgni setur pressu á verktaka að vanda til verka og lágmarka rask.
Tilraunaverkefnið leiddi til þess að ákveðið hefur verið að vinna slík eftirfylgniverkefni áfram og var slík úttekt gerð fyrir Kröflulínu 3 síðasta sumar.
Eftirfylgni mats á umhverfisáhrifum Kröflulínu 3.
Gerðar voru mælingar á umfangi slóða og mastraplana til að bera saman við spár í umhverfismatinu. Auk þess voru teknar ljósmyndir af mannvirkjum til samanburðar við líkanamyndir sem höfðu verið notaðar í umhverfismatinu. Niðurstaðan var að sú að slóðabreidd var almennt minni en spár höfðu gert ráð fyrir, en undantekningin væri uppbyggður slóði þvert yfir votlendið á Fljótsdalsheiði sem var nokkuð breiðari, en í umhverfismatsskýrslu hefði hins vegar verið greint frá því með orðum að sú yrði raunin. Þá gefur niðurstaða eftirfylgninnar einnig til kynna að líkanmyndir af fyrirhuguðum mannvirkjum í umhverfismatinu virðast alla jafna geta gefið nokkuð raunsanna hugmynd um hvernig mannvirkin munu líta út að framkvæmdum loknum.
Sumarið 2024 verður bæði gerð umhverfisúttekt og eftirfylgni umhverfismats fyrir Hólasandslínu 3.