Landsnet tekur lán hjá Norræna fjárfestingarbankanum
Landsnet og Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) hafa skrifað undir samning um lán að fjárhæð 50 milljóna Bandaríkjadala, jafngildi um 7 milljarða króna, til að fjármagna styrkingu flutningskerfisins.
Guðlaug Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjármála og árangurs segir lánið vera hagstætt, vera á föstum vöxtum og til 15 ára.
“Við hjá Landsneti leggjum áherslu á efnahagslegt mikilvægi flutningskerfisins. Með sterkara flutningskerfi styðjum við samfélagið í að takast á við nýjar áskoranir í orkuumhverfinu, nýta betur auðlindir og stuðla að orkuskiptum. Til að ná markmiðum um orkuöryggi og tryggari flutning raforku á milli landshluta höldum við ótrauð áfram að byggja upp flutningskerfið og styrkja afhendingu til notenda. Nú sem endranær leggjum við áherslu á að leita ábyrgra lausna gagnvart samfélagi, atvinnulífi og umhverfi. Norræni fjárfestingarbankinn hefur verið traustur samstarfsaðili Landsnets um árabil. Það er ánægjulegt að segja frá því að rekstur Landsnets og framkvæmdir okkar í flutningskerfinu falla að sjálfbærniviðmiðum bankans varðandi mótvægisaðgerðir í loftslagsmálum. Á meðal verkefna sem þetta lán fjármagnar er fyrsta tengivirki Landsnets þar sem búnaður er einangraður með grænu gasi, sem er umhverfisvænni kostur en áður hefur verið í boði. Við erum mjög ánægð með samninginn við Norræna fjárfestingarbankann, það traust sem hann sýnir Landsneti og þeim markmiðum sem við höfum sett fram í okkar áætlunum.”