Jóhannes nýr framkvæmdastjóri hjá Landsneti


05.06.2024

Framkvæmd

Landsnet hefur ráðið Jóhannes Þorleiksson í starf framkvæmdastjóra upplýsingagreindar og – tækni þar sem hann mun fara fyrir öflugum hópi sem ber ábyrgð á þróun gagnadrifinnar þjónustu, upplýsingaöryggi og rekstri upplýsingakerfa Landsnets.

Ráðning Jóhannesar er hluti af þeirri vegferð sem Landsnet er á þar sem nýjar aðferðir eru notaðar til að takast á við breytta tíma.  Orkumálin eru breytingum háð og rauntímaupplýsingar sem byggja á víðtækum gagnabönkum eru einn af lykilþáttunum í átt að orkuskiptunum.

„ Ég hlakka til að takast á við þau verkefni sem bíða mín hjá Landsneti þar sem eru ótrúlega spennandi hlutir að gerast. Hjá Landsneti starfar flottur hópur sem ég þekki vel til og það verður frábært að fá tækifæri til að leiða upplýsingagreind – og tækni áfram inn í framtíðina„ segir Jóhannes

Jóhannes Þorleiksson er með M.Sc. gráðu í raforkuverkfræði frá Chalmers Tekniska Högskola í Svíþjóð. Hann starfaði áður sem forstöðumaður rafveitu hjá Veitum frá 2019 til 2024 þar sem hann sat í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Einnig var hann framkvæmdastjóri Norconsult á Íslandi 2017-2019. Jóhannes hefur einnig víðtæka reynslu af ráðgjafastörfum á sviði raforku og kerfisgreiningum ásamt öryggismálum.

Aftur í allar fréttir