52 sóttu um starf forstjóra


09.01.2025

Framkvæmd

Leitin að næsta forstjóra Landsnets er komin á fullt skrið og mikil eftirvænting ríkir um hver muni taka við keflinu en alls bárust 52 umsóknir um starfið, 17 konur og 35 karlar.

Í samráði við ráðgjafa á sviði mannauðsmála ákvað stjórn Landsnets að birta ekki nöfn umsækjenda. Er það gert með hagsmuni Landsnets í huga og til að tryggja að sem flestir hæfir einstaklingar myndu sækjast eftir starfinu. 

Ráðningarferlið er nú hafið í samstarfi við ráðningarstofuna Hagvang og munu viðtöl við umsækjendur hefjast á næstu dögum. 

Nýr forstjóri mun leiða Landsnet í gegnum spennandi tímabil umbreytinga og framfara. Við hlökkum til að deila frekari fréttum þegar ákvörðun um næsta forstjóra Landsnets liggur fyrir.

Aftur í allar fréttir