Háskólinn í Reykjavík og Landsnet hafa gert með sér samstarfssamning sem gildir til loka árs 2028. HR og Landsnet hafa verið í samstarfi um rannsóknir og menntun allt frá árinu 2013. Þá er Landsnet einn af stofnendum Rannsóknarseturs HR um sjálfbæra þróun (SIF), en það samstarf hófst árið 2019.
Háskólinn í Reykjavík og Landsnet hafa gert með sér samstarfssamning sem gildir til loka árs 2028. HR og Landsnet hafa verið í samstarfi um rannsóknir og menntun allt frá árinu 2013. Þá er Landsnet einn af stofnendum Rannsóknarseturs HR um sjálfbæra þróun (SIF), en það samstarf hófst árið 2019.
Með samningnum sem nú er undirritaður vill Landsnet halda áfram að styðja við rannsóknir og menntun á sviði flutnings og vinnslu endurnýjanlegrar raforku. Landsnet mun þannig halda áfram að vera bakhjarl SIF og styðja við rannsóknir og lokaverkefni á sviði setursins.
Meðal viðfangsefna SIF eru rannsóknir á flutningi raforku, nýtingu orkunnar, raforkumarkaði, orkuskiptum, snjallneti, stafranni þróun og sjálfbærni. Rannsóknarsetrið leggur áherslu á þverfaglega þekkingu á viðfangsefnum orkufyrirtækjanna.
Í samstarfssamningnum er einnig kveðið á um tækifæri til endurmenntunar hjá HR og Opna háskólanum fyrir starfsfólk Landsnets, samstarf um fræðslu og viðburði og aðild Landsnets að Icelandic Innovation Partners (IIP) sem er samstarf MIT, HR og valinna fyrirtækja á Íslandi. Heildarfjárhæð samstarfssamningsins er alls 50 milljónir króna á samningstímanum.
„Það er mjög ánægjulegt að skrifa enn á ný undir samstarfssamning við Landsnet. Orkumálin verða sífellt mikilvægari og því nauðsynlegt að halda áfram að stunda fjölbreyttar rannsóknir á því sviði sem og bjóða upp á framúrskarandi menntun sem nýtist samfélaginu til framtíðar. HR hefur ávallt lagt mikið upp úr nánu samstarfi við atvinnulífið og þessi samningur er frábært dæmi um það,“ segir Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík.
„Það eru spennandi tímar fram undan þegar kemur að orkumálum og við þurfum að hafa í okkar röðum vel menntað fólk sem er tilbúið að takast á við framtíðina með okkur. Nýsköpun og rannsóknir skipta æ meira máli og það er mikilvægt fyrir okkur að vera í góðu samstarfi við háskólasamfélagið. Samningurinn við Háskólann í Reykjavík er okkur mjög mikilvægur, ekki bara þegar kemur að menntun framtíðarstarfsmanna heldur líka það sem snýr að endurmenntun og ekki síst rannsóknum,“ segir Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets.
Ljósmynd:
Aftari röð: Helgi Þór Ingason, Ólafur Eysteinn Sigurjónsson, Ármann Gylfason og Magni Þór Pálsson. Fremri röð: Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir, Ragnhildur Helgadóttir, Guðmundur Ingi Ásmundsson og Guðný Björg Hauksdóttir.
_______________________________________
Reykjavik University and Landsnet have signed a cooperation agreement that will be in effect until the end of 2028. RU and Landsnet have collaborated on research and education since 2013. Landsnet is also one of the founders of RU's Research Center for Sustainable Development (SIF), collaboration that begin in 2019.
Guðmundur Ingi Ásmundsson, CEO of Landsnet, and Ragnhildur Helgadóttir, President of RU.
With the newly signed agreement, Landsnet aims to continue supporting research and education in the field of renewable energy transmission and processing. Landsnet will thus remain a key supporter of SIF and will back research and final theses within the center.
Among SIF's focus areas are research on electricity transmission, energy utilization, the electricity market, energy transitions, smart grids, digital development, and sustainability. The research center emphasizes interdisciplinary knowledge related to the energy sector.
The agreement also includes opportunities for further education at RU and the Open University for Landsnet employees, collaboration on educational activities and events, and Landsnet's membership in Icelandic Innovation Partners (IIP), which is a collaboration between MIT, RU, and selected companies in Iceland. The total value of the cooperation agreement amounts to 50 million ISK over the term of the agreement.