Forathugun fyrir háspennulínu, veg og virkjanir á Sprengisandi


16.06.2014

Framkvæmd

Forathugun fyrir háspennulínu, veg og virkjanir á Sprengisandi hefur verið unnin fyrir Landsnet, Landsvirkjun og Vegagerðina með það að meginmarkmiði að skapa heildaryfirlit yfir mannvirkjagerð á svæðinu. Nauðsynlegt er að leggja mat á legu vegar og línu saman, ekki síst með tilliti til sjónrænna áhrifa. Æskilegt er að mannvirkin verði á „mannvirkjabelti“ Sprengisands, þó þannig að hæfileg fjarlægð verði á milli þeirra. Forathugunin er unnin sem undanfari breytinga á skipulagi og umhverfismats og er hugsuð sem fyrsta upplegg til umræðu um valkosti.

Forathugunin var unnin af teiknistofunni Steinsholti sf. Á Hellu en við endurskoðun á aðalskipulagi Ásahrepps fyrir Holtamannaafrétt og Þingeyjarsveitar fyrir Bárðdælaafrétt, komu fram nýjar forsendur sem m.a. tengjast Sprengisandslínu, Sprengisandsvegi og hugsanlegum virkjunum á svæðinu. Í kjölfarið var ákveðið að skoða á faglegan hátt mögulega kosti fyrir staðsetningu háspennulínu og vegar yfir Sprengisand. Forathugunin var gerð í tvennu lagi og náði fyrri áfanginn til Landmanna- og Holtamannaafrétta og sá síðari til Bárðdælaafréttar.
Samspil verndar og nýtingar


Bætt skipulag á Landmanna- , Holtamanna- og Bárðdælaafrétti mun vernda betur viðkvæm svæði samfara því að með greiðari samgöngum yfir Sprengisand batnar umferðaröryggi og ferðatími styttist. Auk þess getur betri vegur stuðlað að eflingu ferðaþjónustu. Nýjar virkjanir styrkja tekjustofn sveitarfélaga og háspennulína yfir Sprengisand kemur til með að auka öryggi í afhendingu raforku. Eftirfarandi atriði voru höfð að leiðarljósi í athuguninni:
 

  • Mannvirki hafi sem minnst áhrif á landslag, náttúru- og menningarminjar og verndarsvæði.
  • Sjónræn áhrif mannvirkja verði sem minnst og mannvirki séu í góðu samræmi við umhverfið.
  • Mannvirki séu sem mest innan núverandi mannvirkjabeltis og staðsett með tilliti til hvers annars.
  • Mannvirki skerði víðerni sem minnst.
  • Gróðurlendi verði hlíft eins og kostur er.
  • Mannvirki hafi jákvæð áhrif á ferðaþjónustu og dragi ekki úr möguleikum til útivistar.

     

Meginmarkmið athugunarinnar var að taka saman mismunandi grundvallarsjónarmið, og byggt á þeim að leggja til mismunandi valkosti til að vega og meta. Í umhverfisskýrslu forathugunarinnar var lagt mat á eftirfarandi kosti:
 

  • Mismunandi valkosti fyrir legu háspennulínu, frá Langöldu á Landmannaafrétti að tengivirki á Vallnafjalli í Bárðardal.
  • Mismunandi valkosti fyrir legu Sprengisandsvegar, frá Haldi á Landmannaafrétti og til byggðar í Bárðardal.
  • Útfærslu á Norðlingaölduveitu, Skrokkölduvirkjunar, Fljótshnjúksvirkjunar og Hrafnabjargavirkjun.
  • Mögulegan aðkomuveg að Hágönguvirkjun og Skrokkölduvirkjun og tengingu þessara virkjana við flutningskerfi raforku.

Verkefnið hófst seinnipart sumars árið 2010 og lauk skýrslugerðinni, sem eins og fyrr segir var unnin fyrir Landsnet, Landsvirkjun og Vegagerðina, í árslok 2013. 

 

Forathugun á Holtamannaafréttir - skýrsla

Forathugun á Bárðdælaafrétti - skýrsla

Aftur í allar fréttir