Þann 7 maí vorum við með fund á Ísafirði þar sem Kerfisáætlun 2025–2034 var kynnt. Fundurinn var hluti af fundaröð þar sem áhersla er lögð á samtal við heimamenn um þróun flutningskerfis raforku, orkuskipti og framtíðaráskoranir.
Sérstök áhersla var lögð á framkvæmdaverkefni á Vestfjörðum sem miða að því að tryggja örugga afhendingu rafmagns og skapa rými fyrir nýja raforkuframleiðslu:
- Tvítenging svæðisins með Mjólkárlínu 2 og 3
- Breiðadalslína 2
- Endurnýjaður afhendingarstaður á Bíldudal
- Tenging Hvalárvirkjunar við flutningskerfið
- Yfirbygging tengivirkja og launaflsbúnaður
Verkefnin eru liður í að auka rekstraröryggi og samkeppnishæfni samfélagsins á svæðinu til lengri tíma.
Í lok fundarins var haldið pallborðsspjall með heimamönnum þar sem þátttakendur voru:
- Gylfi Ólafsson, formaður Fjórðungssambands Vestfjarða
- Þorsteinn Másson, framkvæmdastjóri Bláma
- Sölvi Sólbergsson, framkvæmdastjóri Orkusviðs hjá Orkubúi Vestfjarða
Afmælisstemning og næsti fundur
Til að fagna 20 ára afmæli Landsnets var fundargestum boðið upp á afmæliskökur og kaffi. Næsti fundur verður haldinn á Akureyri miðvikudaginn 8. maí kl. 16:00 og eru allir velkomnir.
➡️ Nánari upplýsingar og Kerfisáætlun í heild má finna á landsnet.is/kerfisaaetlun.