Jarðstrengir á hærri spennu töluvert dýrari en loftlínur í Danmörku og Noregi


04.04.2014

Framkvæmd

Lagning jarðstrengja í Noregi og Danmörku er 5 - 10 sinnum dýrari á 400 kV spennu en lagning hefðbundinna loftlína. Þetta kom fram í erindum sem þau Tanja Midtsian frá norsku orkustofnuninni, NVE, og Jens Möller Birkebæk frá Energinet.dk fluttu á almennum kynningarfundi sem nýverið fór fram samhliða aðalfundi Landsnets.

Mismunur í kostnaði við lagningu jarðstrengja í þessum löndum ræðst einkum af þrennu; spennustigi strengjanna, jarðfræði viðkomandi landsvæðis og umhverfisáhrifum af framkvæmdum.

Tanja Midtsian sagði í erindi sínu að verkefni NVE fælist fyrst og fremst í því að meta kosti loftlína og jarðstrengi út frá þeirri forsendu hvað teldist ásættanlegur kostnaður við framkvæmdina. Ekki aðeins frá fjárhagslegu sjónarmiði heldur einnig með tilliti til umhverfissjónarmiða.

Neytendur borga brúsann
Í Noregi hefur aðallega verið horft til loftlína en jarðstrengir hafa helst komið þar til álita innan þéttbýlis eða þar sem aðstæður eru mjög erfiðar. Midtsian sagði ástæðuna fyrir vali loftlína einnig taka mið af framkvæmdakostnaði og nefndi að að jarðstrengur væri 5-10 sinnum dýrari kostur, allt eftir spennustigi og fleiri þáttum.

Loftlínur hefðu vissulega sína galla þótt þær væru ódýrari. Þær væru berskjaldaðar fyrir óveðri en bilanir væri hins vegar auðvelt að finna. Þessu væri þveröfugt farið með jarðstrengi. Þeir væru óháðir veðri en bilanaleit væri seinleg. Í Noregi eru um 48% raflína á lægri spennu lagðar í jörð en ekki nema 3-7% af strengjum með hærri spennu.

Léttvæg áskorun Dana
Jens Möller Birkebæk vakti í upphafi erindis síns máls á því að áskorun Dana í þessum málum væri léttvæg í samanburði við aðstæður í Noregi og á Íslandi. Flatlendi og mjúkur jarðvegur í Danmörku væru ákjósanlegar aðstæður fyrir lagningu jarðstrengja. Engu að síður væri kostnaðurinn 5-6 sinnum hærri en við lagningu hefðbundinna loftlína á 400 kV spennu.

Danska þingið afgreiddi með afgerandi meirihluta árið 2008 áætlun í raforkumálum, þar sem er kveðið á um að flutningskerfið í landinu skuli lagt í jörðu að undanskildum nokkrum 400 kV loftlínum. Þingið stóð þá frammi fyrir þeirri kostnaðaráætlun að lagning alls kerfisins í jörð kostaði danskt samfélag 6,4 milljarða evra. Niðurstaðan varð fyrrgreind málamiðlun sem metið er að kosti 2,3 milljarða evra í framkvæmd, eða sem nemur um 360 milljörðum íslenskra króna.

Myndir af Tönju Midtsian og Jens Möller Birkebæk á kynningarfundi Landsnets á Hilton Reykjavík Nordica.
Aftur í allar fréttir