Sterkt flutningskerfi forsenda orkuöryggis - Kerfisáætlun Landsnets 2025 - 2034 komin í opið umsagnarferli


10.04.2025

Framkvæmd

Kerfisáætlunin okkar er nú komin í umsagnarferli, hún er ein mikilvægasta stefnumótunin okkar þar sem við leggjum línurnar fyrir þróun raforkukerfisins til næstu ára og förum yfir þær framkvæmdir sem eru framundan.

Orkuskipti kalla á tvöfalda raforkuþörf 

Til að viðhalda núverandi lífsgæðum með eingöngu endurnýjanlegri orku mun raforkuþörf þjóðarinnar líklega tvöfaldast. Hraði orkuskiptanna er óviss en umfangið er ljóst. Þess vegna er uppbygging flutningskerfis raforku lykilatriði – án þess næst markmið um hækkandi hlutfall endurnýjanlegrar orku ekki. 

Takmörkuð flutningsgeta milli landshluta veldur því að ekki er hægt að nýta virkjanir að fullu. Þetta takmarkar einnig uppbyggingu nýrrar orkuframleiðslu.  Áætlað er að flutningstakmarkanir hafi kostað þjóðarbúið 11–15 milljarða króna á ári – án þess að reikna með glötuðum tækifærum í atvinnuuppbyggingu. 

Stærsta verkefnið í nýrri kerfisáætlun er styrking byggðalínuhringsins, þar sem ný tenging milli Akureyrar og Hvalfjarðar mun bæta flæði milli austur- og suðursvæðis. Enn á eftir að skilgreina lokaþrep hringtengingarinnar sunnan megin en Landsnet undirbýr þá umræðu með rannsóknum næstu tvö árin. 

Uppbygging vindorku á Íslandi er hafin og tenging fyrsta vindorkuversins er á framkvæmdaáætlun. Margir kostir hafa verið kynntir, þó aðeins tveir séu í nýtingarflokki rammaáætlunar. Breytileg framleiðsla krefst sveigjanlegs kerfis og niðurstöður nýs orkuflæðilíkans sýna að flökt í orkuframboði mun aukast – sérstaklega í 220 kV kerfinu. Það kallar á aukna getu, bæði í flutningi og stýringu. 

Áfram veginn – með trausta framtíðarsýn 

Kerfisáætlun Landsnets dregur fram forgangsröðun í uppbyggingu og endurnýjun raforkukerfisins næstu ár. Þrátt fyrir áskoranir í aðfangakeðju og efnahagsumhverfi hafa flest verkefni Landsnets staðist tíma- og kostnaðaráætlanir. Það er lykilatriði – því framtíð íslensks samfélags, atvinnulífs og loftslags fer eftir því að við höfum örugga, endurnýjanlega orku – á réttum stað, á réttum tíma. 

Hægt að nálgast áætlunina á vefnum okkar, www.landsnet.is/kerfisaaetlun.

Við hvetjum öll sem áhuga hafa á uppbyggingu innviða til að kynna sér efni áætlunarinnar og skila inn umsögnum fyrir lok umsagnarfretsins en frestur til að skila inn umsögnum er til  31.maí 2025.

Aftur í allar fréttir