Kynning á nýrri kerfisáætlun hafin - öruggt rafmagn fyrir alla


29.04.2025

Framkvæmd

Við hjá Landsneti höfum hafið kynningu á nýrri kerfisáætlun fyrir árin 2025–2034 en fyrsti kynningarfundurinn fór fram á Egilsstöðum í dag. Kerfisáætlunin varpar ljósi á framtíðarsýn okkar um ábyrga uppbyggingu raforkuflutningskerfisins til að mæta vaxandi orkuþörf og stuðla að orkuskiptum á Íslandi.

Í kerfisáætluninni kemur fram að öflugt og traust raforkuflutningskerfi sé grunnforsenda fyrir áframhaldandi samfélagslega þróun, orkuskipti og aukna samkeppnishæfni þjóðarinnar. Lögð er áhersla á:

  • Örugga afhendingu raforku um land allt.
  • Stuðning við nýsköpun og atvinnuuppbyggingu.
  • Samfélagslega og þjóðhagslega ábyrgð í þróun innviða.
  • Að tryggja jöfn tækifæri milli landshluta með auknu afhendingaröryggi.

 

Fundurinn á Egilsstöðum í gær markaði upphafið að kynningarferli kerfisáætlunarinnar. Þar fórum við yfir helstu forsendur áætlunarinnar, áætlaðar framkvæmdir og mikilvægi öflugs flutningskerfis fyrir framtíð íslensks samfélags ásamt framkvæmdum sem eru framundan á Austurlandi.

Næsti fundur verður á Selfossi , þriðjudaginn 29. apríl kl. 16.

Á næstu vikum munum við halda fleiri kynningarfundi víða um landið og hvetjum almenning, sveitarstjórnir og hagaðila til að kynna sér efnið og koma á framfæri athugasemdum.

Kerfisáætlunin er aðgengileg á heimasíðu Landsnets, www.landsnet.is/kerfisaaetlun og á Skipulagsgáttinni. Með kerfisáætlun 2025–2034 leggjum við  grunninn að öruggu rafmagni fyrir alla landsmenn – hvar sem þeir búa.

Aftur í allar fréttir