Raforkuverð vegna flutningstapa verður 5.923 kr/MWst fyrir fyrsta ársfjórðung 2022, hækkar um 25% miðað við sama tíma í fyrra.
Nýverið voru opnuð tilboð í raforku sem áætlað er að muni tapast á fyrsta ársfjórðungi næsta, en Landsnet býður fjórum sinnum á ári út alla þá orku sem tapast í flutningskerfinu.Flutningstöp er sú raforka sem tapast vegna viðnáms í raflínum og spennum í raforkuflutningskerfinu. Um 2% þeirrar raforku sem mötuð er inn á kerfið tapast á leið til notenda. Sú raforka samsvarar um 400 GWst/ári sem jafngildir framleiðslu Kröflustöðvar eða raforkunotkun um 150.000 rafmagnsbíla á einu ári. Samkvæmt raforkulögum nr. 65/2003 ber Landsneti að útvega rafmagn í stað þess sem tapast í kerfinu.
Boðnar voru út tvenns konar vörur. Annars vegar er um að ræða grunntöp með fullum nýtingartíma og hins vegar eru það viðbótartöp með 55% nýtingartíma og sveigjanleika sem nemur magn aukningu eða – minnkun um +/- 30%. Alls voru um 98 GWst af raforku boðin út en það er sú raforka sem áætlað er að tapist í flutningskerfinu á næsta ársfjórðungi. Fyrir sama tímabil í fyrra var boðin út nokkuð minni orka, en flutningstapið hefur færst í aukana undanfarin misseri vegna meiri innmötunar og óvenju mikils flutnings frá austri til vesturs eftir Byggðalínunni sem stafar af lágri vatnsstöðu á virkjanasvæði Þjórsár.
Meðalverð þessa útboðs hækkar um 25% miðað við sama tíma í fyrra. Raforkuverð vegna flutningstapa á fyrsta ársfjórðungi 2022 verður 5.923 kr/MWst. Gjald vegna flutningstapa fyrir sama tímabil verður 117,91 kr. á MWst og hækkar úr 102,53 kr. á MWst, eða um 15% milli ársfjórðunga og um 25% frá sama tímabili í fyrra.
Að þessu sinni var samið við fjóra raforkusala, Íslenska orkumiðlun, Landsvirkjun, Orku náttúrunnar og Straumlind á grundvelli þeirra tilboða sem bárust og er heildarkostnaður um 579 millj. kr. Til að geta tekið þátt í rafrænum útboðum á raforku vegna flutningstapa þurfa raforkusölufyrirtæki að gera rammasamning við Landsnet. Rammasamningur skyldar þó ekki fyrirtæki til þess að taka þátt í útboðunum, enda er það val hvers sölufyrirtækis hverju sinni. Í dag eru 6 raforkusalar með rammasamning við Landsnet: HS Orka, Íslensk orkumiðlun, Landsvirkjun, Orka náttúrunnar, Orkusalan og Straumlind og bárust tilboð frá þeim öllum að Orkusölunni undanskildir.
Öll tilboð sem bárust vegna útboðsins eru birt hér á vefnum og þar er hægt að skoða nánar dreifingu tilboða og bera saman við tilboð fyrri útboða.