Samanburður á umhverfismati og raunverulegum áhrifum framkvæmda


16.06.2025

Framkvæmd

Undanfarin misseri höfum við unnið að því að fylgja eftir umhverfismati framkvæmda með mælingum á vettvangi. Markmiðið er að kanna hvort áhrif framkvæmda á umhverfið séu í samræmi við það sem spáð var fyrir um í umhverfismatinu.

Í nýlegri eftirfylgniskýrslu fyrir Hólasandslínu 3 voru teknar stikkprufur af breidd slóða, mastraplönum og raski í kringum möstur. Einnig voru teknar ljósmyndir frá sömu sjónarhornum og líkanmyndir sem notaðar voru í umhverfismatinu, og þær bornar saman.

Minna rask en gert var ráð fyrir

Niðurstöðurnar sýna að rasksvæði undir möstrum var almennt minna en gert var ráð fyrir. Hins vegar kom í ljós að breidd slóða og stærð mastraplana var breytileg eftir landslagi. Til dæmis þurfti víðari slóða í bröttum hlíðum, en á flatlendi var raskið minna.

Líkön og myndir sem notaðar voru í umhverfismatinu reyndust gefa góða mynd af því hvernig svæðið myndi líta út eftir framkvæmdir. Þetta styður áframhaldandi notkun þeirra við mat á áhrifum á ásýnd.

Næstu skref verða að skoða hvort og hvernig niðurstöður úr eftirfylgninni geti nýst til að bæta forsendur og framsetningu í umhverfismatsverkefnum í framtíðinni.

Nánari upplýsingar má finna í eftirfylgniskýrslu Hólasandslínu 3, þar sem niðurstöður mælinga og samanburður við umhverfismat eru raktar ítarlega

Aftur í allar fréttir