Samskipti aðila á raforkumarkaði (B6)

Markmið og tilgangur
Greiningar og hönnun
Ritun og samráð stóð yfir á árinu 2020
Umsagnarferli
Fyrra umsagnarferli viðskiptavina stóð yfir frá 21.10.2020 - 9.11.2020 Seinna umsagnarferli viðskiptavina stendur yfir frá 22.3.2021 - 29.3.2021
Samþykktarferli
Skilmálinn var sendur í samþykkt til Orkustofnunar 15. desember 2020 og dreginn tilbaka í mars 2021. Skilmálinn var sendur í samþykkt til Orkustofnunar 31. mars 2021.
Gildistaka
Gildistaka á þriðju útgáfu skilmála B6 8. apríl 2021

Samskipti aðila á raforkumarkaði

Auknar áherslur á neytendavernd og að efla samkeppni

Auknar áherslur hafa verið á neytendavernd á raforkumarkaði sem er að finna í þriðju raforkutilskipun ESB. Markmiðið er að efla neytendavernd á sviði raforkumála, stuðla að einföldun regluverks og rafrænni stjórnsýslu, og að sama skapi að liðka fyrir aðkomu nýrra aðila á smásölumarkaði raforku en það er mikilvægur liður í því að efla samkeppni á raforkumarkaði með hagsmuni neytenda að leiðarljósi.   

 

Í desember 2019 var gefin út reglugerð nr. 1150/2019 um raforkuviðskipti og mælingar. Er þar um að ræða uppfærslu á reglugerð nr. 1050/2004 með sama heiti. 

Margvíslega réttarbót er að finna í reglugerðinni sem snýr m.a. að því að:

  • tryggja rétt neytenda á hverjum tíma til að velja sér raforkusala,
  • auðvelda notendaskipti með rafrænum hætti og
  • stytta fresti þegar kemur að rétti notanda til að segja upp sölusamningi
  • að sama skapi eru með reglugerðinni lagðar auknar skyldur á sölufyrirtæki og dreifiveitur með það að markmiði að upplýsa neytendur um rétt sinn, leiðbeina þeim með aðgengilegum og sýnilegum hætti, og gæta jafnræðis í hvívetna þannig að ekki sé t.d. vakin athygli notenda á einu sölufyrirtæki umfram annað.
  • þær breytingar sem reglugerðin kveður á um eru í samræmi við auknar áherslur á neytendavernd sem er að finna í þriðju raforkutilskipun ESB.
  • einnig miða breytingarnar að því að efla samkeppni á raforkumarkaði og liðka fyrir aðkomu nýrra aðila á smásölumarkað raforku.

 

Skilmáli Landsnets B6 um samskipti aðila á raforkumarkaði endurspeglar og útfærir reglugerð um raforkuviðskipti og mælingar. Með skilmálabreytingunni er verið að uppfylla ákvæði relgugerðarinnar. Einnig þarf að gera lítilsháttar uppfærslu á netmála B7 um mæligögn, notkunarferil og notkunarferilsuppgjör. 

 

Ferli við gerð netmála Landsnets er opið og gagnsætt. Allar umsagnir sem berast verða birtar opinberlega á heimasíðunni okkar ásamt viðbrögðum okkar við þeim.

Ef einhverjar spurningar vakna endilega hafið samband við okkur á netfangið vidskipti@landsnet.is

Fylgiskjöl

Drög til umsagnar í október 2020

DRÖG - netmáli um samskipti aðila á raforkumarkaði með gögn (B6) - útgáfa 3.0 - til umsagnar

DRÖG - netmáli um samskipti aðila á raforkumarkaði með gögn (B6) - útgáfa 3.0 með breytingum frá útgáfu 2.0 - til umsagnar

DRÖG - netmáli um mæligögn og notkunarferil (B7) - útgáfa 3.0 - til umsagnar

DRÖG - netmáli um mæligögn og notkunarferil (B7) - útgáfa 3.0 með breytingum frá útgáfu 2.0 - til umsagnar

Umsagnir í október og viðbrögð okkar við þeim

Skilmáli B6 um samskipti aðila á raforkumarkaði með gögn - útgáfa 3.0 - viðbrögð við umsögnum

Skilmáli B6 - um samskipti aðila á raforkumarkaði - útgáfa 3.0 með breytingum frá drögum úr umsagnarferli

Úr gildi - Lokaútgáfur af skilmálunum, útg.3.0

Úr gildi - Skilmáli B6 - um samskipti aðila á raforkumarkaði - útgáfa 3.0

Úr gildi - Skilmáli B7 um mæligögn, notkunarferil og notkunarferlauppgjör - útgáfa 3.0

Drög til umsagnar í mars 2021

DRÖG - netmáli um samskipti aðila á raforkumarkaði með gögn (B6) - útgáfa 3.0 - til umsagnar í mars 2021

DRÖG - netmáli um samskipti aðila á raforkumarkaði með gögn (B6) - útgáfa 3.0 með breytingum frá fyrri lokaútgáfu - til umsagnar í mars 2021

Umsagnir í mars og viðbrögð okkar við þeim

Skilmáli B6 um samskipti aðila á raforkumarkaði með gögn - útgáfa 3.0 - viðbrögð við umsögnum mars 2021

Skilmáli B6 um samskipti aðila á raforkumarkaði - útgáfa 3.0 - með breytingum úr umsagnarferli í mars 2021