Við viljum byggja upp skýra ímynd sem tengist fagmennsku og trausti og leggjum mikla áherslu á samfélagsábyrgð.
Áhersla er lögð á að starfa sem nútímalegt og framsækið fyrirtæki sem skoðar ólíkar lausnir með opnum huga og með heildarhagsmuni samfélagsins að leiðarljósi.
Stefna okkar byggir á hlutverki Landsnets og framtíðarsýn og er ætlað að stuðla að því að það ræki hlutverk sitt af natni og í sem víðtækastri sátt við samfélagið og umhverfið.
Við höfum mótað okkur sjálfbærnistefnu, sem fylgir alþjóðlegum viðmiðum um samfélagsábyrgð, og erum aðilar að Festu.
Samráð við hagaðila
Við höfum sett á stofn hagsmunaráð en megintilgangur þess er að skapa vettvang umræðna milli hagsmunaaðila í samfélaginu um uppbyggingu raforkukerfisins.
Á sama hátt hafa verið sett á fót verkefnaráð um okkar helstu framkvæmdir; samráðsvettvang þar sem helstu hagsmunaaðilar koma saman til kynninga- og samráðsfunda.
Markmiðið með stofnun verkefnaráðanna er að tryggja virkara samtal, skilning og betra upplýsingaflæði milli hagsmunaaðila í aðdraganda ákvarðana um framkvæmdir á okkar vegum. Við hvetjum alla aðila til að fylgjast með á www.landsnet.is þar sem upplýsingar um framvindu verkefna, fundagerðir og kynningar eru settar inn.
Vinnustaðurinn
Við leggjum okkur fram um að vera eftirsóknarverður vinnustaður. Við leggjum áherslu á umhyggju í starfi og velferð starfsfólks okkar, vinnum markvisst að jafnréttismálum og leggjum okkur fram um framúrskarandi þekkingu á okkar sviði.
Öryggismál
Öryggismál skipta okkur öllu og við leggjum okkur fram við að skapa öruggan og slysalausan vinnustað.
Við styðjum málefni sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið okkar og horfum við þá til málefna sem tengjast umhverfi, forvörnum og fræðslu. Nánari upplýsingar um styrki má finna hér.
FLÝTILEIÐIR
FLÝTILEIÐIR