Góð umræða á opnum fundi um Vegamótalínu 2


08.10.2026

Framkvæmd

Opinn fundur Landsnets um fyrirhugaða lagningu Vegamótalínu 2, loftlínu milli Vatnshamra í Borgarfirði og Vegamóta á Snæfellsnesi, var haldinn á Hótel Hamri í Borgarnesi miðvikudagskvöldið 7. október.

Fundurinn var vel sóttur. Fulltrúar Landsnets og VSÓ Ráðgjafar kynntu þar áformin og tímalínu undirbúnings verkefnisins. Líflegar og málefnalegar umræður sköpuðust meðal fundargesta og voru fyrstu drög að línuleiðinni sýnd á korti. Fundargestum gafst jafnframt kostur á að koma á framfæri eigin hugmyndum og ábendingum um mögulega legu línunnar, enda búa margir yfir góðri þekkingu á staðháttum.

Landsnet hefur hafið undirbúning mats á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Markmið verkefnisins er að tvítengja Snæfellsnes við flutningskerfið og styrkja þannig afhendingaröryggi raforku á svæðinu.

Á næstu misserum verður unnið að frekara samráði við landeigendur og aðra hagsmunaaðila, auk rannsókna og greininga sem nýtast við mat á umhverfisáhrifum og mótun valkosta um legu línunnar.

Annar opinn íbúafundur um Vegamótalínu 2 verður haldinn mánudaginn 12. október klukkan 20:00 í félagsheimilinu Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi

Á framkvæmdasíðu fyrir verkefnið á vef Landsnets er hægt að nálgast allar upplýsingar. Þar er jafnframt hægt að skrá sig á póstlista til að fá fréttir af verkefninu.

Aftur í allar fréttir