Brýnt að endurnýja byggðalínuna - Mikið álag á flutningskerfi raforku vegna lágrar vatnsstöðu í miðlunarlónum


16.08.2021

Framkvæmd

Vatnshæð í Þórisvatni á þessum árstíma hefur aldrei mælst lægri en í sumar, eins og fram hefur komið í fréttum. Landsvirkjun hefur réttilega bent á að ekki þurfi að óttast raforkuskort í vetur en staðan í Þórisvatni er áminning um mikilvægi þess að geta flutt raforku milli landshluta hverju sinni. Á sama tíma og vatnshæð er óvenju lág í Þórisvatni er staða miðlunarlóna á Norður- og Austurlandi ágæt.

 Þetta veldur gríðarlegu álagi á byggðalínuna sem komin er að þolmörkum.

„Rekstur byggðalínunnar hefur verið þungur í sumar en orkuflutningar á milli landshluta þar sem lónstaðan er góð og þangað sem hún er verri hefur valdið því að flutningur hefur verið við öryggismörk í allt sumar“ segir Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets. Við þessar aðstæður má lítið út af bregða til að raforkunotendur verði fyrir truflunum. Mikið álag eða fullnýting lína eykur flutningstöp og leiðir til að verri nýtingar virkjana. Þetta hefur í för með sér lakari árangur í umhverfis- og loftslagsmálum auk þess sem kostnaður við orkukaup vegna flutningsins eykst verulega.

Veðurlag á Suður- og Vesturlandi er gjarnan frábrugðið því sem er á Norður- og Austurlandi. Þetta birtist greinilega í mismunandi stöðu miðlunarlóna í hverjum landshluta. „Sú staða sem nú er uppi sýnir hversu brýn uppbygging flutningskerfis raforku er, sérstaklega tenging landshlutanna. Við hjá Landsneti höfum lengi bent á nauðsynlega endurnýjun byggðalínunnar, sem nú er yfir 40 ára gömul, þannig að við getum mætt betur áskorunum framtíðarinnar vegna loftslagsbreytinga og rafvæðingar,“ segir Guðmundur Ingi.

Unnið að uppbyggingu kerfisins

Nú er unnið við tvo stóra áfanga uppfærslu nýrrar kynslóðar byggðalínunnar. Fyrst er að nefna tengingu á milli  Kröfluvirkjunar og Fljótsdalsvirkjunar, um Hólasand, til Akureyrar. Þessar framkvæmdir ganga vel og þegar þeim lýkur verður staðan önnur og betri á Norðaustur- og Austurlandi, þar sem litlir möguleikar hafa verið á að auka raforkunotkun. Um leið verður raforkukerfið stöðugra og þolnara gagnvart áföllum.

· Krafla - Fljótsdalur 
· Akureyri - Hólasandur 

Seinni hluti uppfærslu byggðalínunnar er einnig hafinn, en þar er um að ræða tengingu Blönduvirkjunar við Eyjafjarðarsvæðið og línu frá Hvalfirði yfir Holtavörðuheiði að Blönduvirkjun. Vinna við mat á umhverfisáhrifum þessara framkvæmda er hafin ásamt umfangsmiklu samráðsferli vegna þeirra. Starfandi eru verkefnaráð fyrir framkvæmdirnar með aðkomu hagaðila, sveitarstjórna og náttúruverndarsamtaka. Að auki er sérstakt samráðsferli með landeigendum. Er það von Landsnets að þessi vandaði undirbúningur leiði til betri sáttar um framkvæmdirnar eins og niðurstaðan var við þær stóru framkvæmdir sem þegar eru í gangi. Þar náðust samningar við alla landeigendur og sveitarfélög á svæðinu.

· Blanda - Akureyri 
· Hvalfjörður – Holtavörðuheiði 


Aftur í allar fréttir